Gistinætur á hótelum í október voru 158.500 sem er 12% aukning miðað við október  í fyrra, eftir því sem fram kemur á vef Hagstofunnar. Gistinætur erlendra gesta voru 77% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 11% frá sama tíma í fyrra á meðan gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 17%.

Á höfuðborgarsvæðinu voru 112.400 gistinætur á hótelum í október sem er fjölgun um 7% ef miðað er við október í fyrra. Á Suðurlandi voru  gistinætur 17.400 í október sem er aukning um 29% frá fyrra ári. Gistinætur á Norðurlandi voru 12.500 í október og fjölgaði um 30%. Á Suðurnesjum voru 7.000 gistinætur í október sem er aukning um 23% frá fyrra ári. Gistinætur á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða voru 4.800 og fjölgaði um 35% og á Austurlandi voru gistinætur 4.300 sem er 26% aukning samanborið við október í fyrra.

Gistinætur á hótelum fyrstu tíu mánuði ársins voru 1.792.879 til samanburðar við 1.589.796 fyrir sama tímabil árið 2012. Ef miðað er við sama tímabil árið 2012 þá hefur gistinóttum erlendra gesta hefur fjölgað um 13% á meðan gistinóttum Íslendinga hefur fjölgað um 11%.