Gistinætur á hótelum í maí voru 216.500 sem er 20% aukning miðað við maí 2014. Gistinætum erlendra gesta, sem voru 85% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum, fjölgaði um 28% frá sama tíma í fyrra. Gistinóttum Íslendinga fækkaði hins vegar um 12%. Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofunnar.

Flestar gistinætur á hótelum í maí voru á höfuðborgarsvæðinu eða 138.800 og júkust þær um 13% miðað við maí 2014. Næst flestar voru gistinætur á Suðurlandi eða um 31.200. Erlendir gestir með flestar gistinætur í maí voru Bandaríkjamenn með 39.500, Þjóðverjar með 31.900 og Bretar með 23.500 gistinætur.

Frá júní 2014 til maí 2015, voru gistinætur á hótelum 2.463.500 sem er fjölgun um 14% miðað við sama tímabil ári fyrr.

63,5% nýting herbergja á hótelum í maí 2015

Nýting herbergja í maí var best á höfuðborgarsvæðinu eða um 77%. Á Suðurnesjum var herbergjanýting um 73%.