Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um 0,2 milljarða króna í maímánuði og nam 61,7 milljörðum króna í lok hans sem jafngildir 996 milljónum Bandaríkjadala miðað við gengi í mánaðarlok. Gengi íslensku krónunnar styrktist um 1,4% í maí.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 1,4 milljarða króna í maí og námu 15,9 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir hækkuðu um 1,7 milljarða króna og námu 8,8 milljörðum króna í mánaðarlok.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 2,2 milljörðum króna í maílok miðað við markaðsverð. Vegna aukaútdráttar Íbúðalánasjóðs á húsbréfum og gjalddaga spariskírteina ríkissjóðs hefur verðbréfaeign bankans lækkað samtals um 1,1 milljarð króna frá áramótum.

Skuldir Seðlabankans við innlánsstofnanir hækkuðu um 7,1 milljarð króna í mánuðinum og námu 21,7 milljörðum króna í maílok, en skuldir við aðrar fjármálastofnanir breyttust lítið í mánuðinum.

Nettóinnstæður ríkissjóðs og ríkisstofnana lækkuðu um 6,6 milljarða króna og námu 15,9 milljörðum króna í lok maí.

Grunnfé bankans hækkaði í maí um 7,5 milljarða króna og nam 33,5 milljörðum króna í mánaðarlok.