Það var mikill fjöldi fólks úr upplýsingatækni hér á landi sem lagði leið sína á Heroes happen {here}netþjóna- og þróunarumhverfiskynningu Microsoft í Smárabíói í gær.

Þar voru ennfremur fjölmörg upplýsingatæknifyrirtæki sem kynntu starfsemi sína og Microsoft lausnir og þjónustu.

Meðal fyrirtækja sem kynntu starfsemi sína var Nýherji en á Microsoft deild fyrirtækisins starfa sérfræðingar með um 90 gráður frá Microsoft.