Glitnir hefur ákveðið að hækka óverðtryggða vexti bankans á innlánum og útlánum um 25-50 punkta í kjölfar stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands um 50 punkta í 14%, segir í tilkynningu.

Vextir á verðtryggðum húsnæðislánum bankans breytast ekki að þessu sinni, segir Glitnir.