Þeir Kjartan Ólafsson og Eyþór Eyjólfsson hafa gengið til liðs við kanadíska laxaframleiðandann Cooke Aquaculture.

Samkvæmt frétt á IntraFish munu þeir félagar vinna sem ráðgjafar hjá Cooke. Kjartan stýrði áður sjávarútvegssviði Glitnis en Eyþór stýrði starfsemi félagsins í Japan og Eyjaálfu.

Ráðning þeirra sýnir vilja kanadíska félagsins til þess að auka við starfsemi sína segir í frétt IntraFish.