Stjarnan ehf., rekstrarfélag Subway-matsölustaðanna á Íslandi, hagnaðist um tæplega 132 milljónir í fyrra. Hagnaður ársins 2011 var um 120 milljónir króna. Ársreikningi fyrir árið 2012 var skilað til ríkisskattstjóra í september síðastliðnum.

Alls námu rekstrartekjur um 1.716 milljónum og rekstrargjöld 1.553 milljónum árið 2012. Stjarnan ehf. er með einkaleyfi á Íslandi fyrir veitingahúsakeðjuna Subway. Eigandi og framkvæmdastjóri er Gunnar Skúli Guðjónsson í gegnum Leiti eignarhaldsfélag ehf.