Sjóður í eigu fjárfestingabankans Goldman Sachs, ásamt danska fjárfestingasjóðnum VIA Equity, lykilstjórnendum á Norðurlöndum og nokkrum smærri hluthöfum hafa gert bindandi kauptilboð í meirihluta hlutafjár Advania. Sjóður Goldman verður meirihlutaeigandi í félaginu.

Í tilkynningu frá Advania er bent á að félagið hafi vaxið um ríflega 20% á ári, undanfarin fimm ár en félagið velti yfir 76 milljörðum króna árið 2020. Markmið nýs eigendahóps er sagt vera að styðja við núverandi stefnu fyrirtækisins og frekari vöxt þess, með innri vexti, kaupum og sameiningum.

Hjá  Advania starfa um 1.400 manns á 27 starfsstöðvum á Norðurlöndnum. Í tilkynningunni er bent á að Advania eigi rætur að rekja til ársins 1939 þegar Einar J. Skúlason stofnaði viðgerðarþjónustu í Reykjavík. Með samruna nokkurra upplýsingatæknifyrirtækja á Íslandi, Svíþjóð og Noregi árið 2012 varð Advania til í núverandi mynd.

„Goldman Sachs er einn virtasti fjárfestingabanki heims og hefur reynslu af árangursríkum fjárfestingum í tæknigeiranum. Við lítum á það sem  gæðastimpil að fá þau inn í hluthafahópinn og erum mjög spennt fyrir vegferðinni framundan. Við erum sannfærð um að þetta opni nýja og spennandi möguleika fyrir starfsfólk okkar. Stefna Advania er óbreytt og við verðum áfram traustur samstarfsaðili í upplýsingatækni og fyrirmyndar vinnustaður,” segir Mikael Noaksson, forstjóri Advania á Norðurlöndunum.

„Við  erum mjög spennt fyrir þessu nýja samstarfi. Við höfum fylgst með Advania um nokkurt skeið og kynnt okkur það vel. Það sem heillaði okkur mest var sterk menning sem skapast hefur innan fyrirtækisins og það góða orð sem fer af því. Okkar markmið er að styðja Advania í að þroska sína sérstöðu og stuðla að frekari vexti þess,“ segir Michael Brunn, meðeigandi hjá Goldman Sachs.

Benjamin Kramarz er meðeigandi í VIA Equity sem verður áfram í eigendahópi Advania; „Við höfum verið hluthafar í Advania í rúm tvö ár og hlökkum til að starfa áfram með þessu frábæra fyrirtæki. Stjórnendum þess hefur tekist vel til við að koma Advania í leiðandi stöðu á Norðurlöndunum og við erum spennt að halda áfram á þeirri braut með frábæru teymi,” segir Kramarz.

Kaupin eru háð samþykki samkeppnisyfirvalda. Raymond James var ráðgjafi Advania í söluferlinu.