Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,98% í dag og endaði í 1,823,25 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 3,04% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Marel, eða um 2,54% í viðskiptum sem hljóða upp á 498 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins nemur 262 krónum á hlut. Gengi bréfa Icelandair hækkaði þá einnig, eða um 1,08% í rúmlega 448 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf nemur þá 32,65 krónum.

Mest lækkaði gengi bréfa HB Granda, eða um 1,41% í viðskiptum sem hljóða upp á 402 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 31,55 krónur. Gengi bréfa Reita lækkaði þá einnig, eða um 0,47% í viðskiptum sem hljóða upp á 30 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 84,3 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega 2 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var rúmega 730 milljónir króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 1% í dag í 2,1 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,1% í dag í 0,7 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,1% í 0 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði lítillega í 0,7 milljarða króna viðskiptum.