Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 1,13% í dag og endaði í 1,807 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 3,89% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Marel, eða um 1,77% í viðskiptum sem hljóða upp á 1,35 milljarð króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 230 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa Icelandair, eða um 1,37% í 839 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf Icelandair nemur þá 35,03 krónum.

Mest lækkaði gengi bréfa N1 um 0,55% í 202 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut N1 er þá 53,9 krónur. Eins og Viðskiptablaðið fjallaði um fyrr í dag birti N1 uppgjör sitt í dag. Einnig lækkaði gengi bréfa Eikar fasteignafélags um 1,46% í 69 milljóna króna viðskiptum. Verð á hlut er þá 8,10 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega 3,4 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 3,1 milljarður króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,9% í dag í 3,4 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,1% í dag í 1,7 milljarða viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,2% í 0,7 milljarða viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði lítillega í 1 milljarða króna viðskiptum.