Úrvalsvísitala Kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,07% í dag og endaði í 1906,71 stigi. Þá hefur vísitalan hækkað um 1,40% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Icelandair Group, eða um 0,40% í viðskiptum sem hljóða upp á 613 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 38,10 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa Eimskip, eða um 0,61% í aðeins 4,6 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf Eimskip er þá 246 krónur.

Mest lækkaði gengi bréfa Símans, eða um 0,32% í 67 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Símans er 13,3 krónur. Þá lækkaði gengi bréfa Sjóvá um 1,02% í viðskiptum upp á 26 milljónir króna. Hver hlutur félagsins kostar 12,65 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var tæplega 1 milljarður króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 2,2 milljarðar króna.