Landvinnsla Granda verður öll sameinuð í einu nýju fiskiðjuveri, sem áformað er að reisa á Akranesi. Stjórn HB Granda hefur sent stjórn Faxaflóahafna ósk um samstarf í þessu skyni, m.a. í því fólgið að Faxaflóahafnir flýti gerð nýrrar landfyllingar og hafnargarðs á Akranesi. HB Grandi stefnir að því að reisa á þeirri uppfyllingu nýtt fiskiðjuver, sem verði tilbúið síðla árs 2009. Þegar starfsemi í nýju húsi á Akranesi hefst, verði fiskvinnsla félagsins í Reykjavík lögð af.

Í frétt á heimasíðu félagsins kemur fram að í kjölfar þess niðurskurðar á aflamarki, sem sjávarútvegsráðherra ákvað 6. júlí 2007, hefur stjórn HB Granda ákveðið að gera breytingar á rekstri félagsins sem meðal annars felast í þessum tilflutningi.


Í frétt félagsins er bent á að aflamark félagsins í þorski dregst á næsta fiskveiðiári svo mjög saman að bein sókn í þorsk verður ómöguleg. Þorskur verður því eingöngu veiddur sem meðafli annarra tegunda, s.s. ýsu, ufsa, karfa og grálúðu. Eina skip félagsins, sem til þessa hefur sótt beint í þorsk, er ísfisktogarinn Sturlaugur H. Böðvarsson. Því verður útgerð Sturlaugs breytt á þann veg að hann mun veiða ufsa og karfa, á sambærilegan hátt og hinir tveir ísfisktogarar félagsins, þeir Ásbjörn og Ottó N. Þorláksson.


Afleiðing af þessu verður að þorskvinnsla í landi skreppur verulega saman, en Sturlaugur hefur til þessa lagt henni til hráefni. Landvinnsla botnfisks verður því fyrst og fremst á karfa og ufsa.


Þangað til starfsemi hefst í nýju húsi mun núverandi fiskiðjuver á Akranesi vinna hluta þess ufsa og allan þann þorsk, sem ísfisktogarar félagsins veiða. Hinn hluti ufsans, sem og allur karfi, verður áfram unninn í Reykjavík.