Ísfugl hagnaðist um 38 milljónir króna í fyrra að því er fram kemur í ársreikningi félagsins. Er þetta töluvert minni hagnaður en 2014 en þá nam hann 70 milljónum.

Stjórn félagsins hefur lagt til að vegna rekstrarársins 2015 verði greiddur 70 milljóna króna arður til hluthafa á þessu ári. Eignir félagsins námu 504 milljónum króna um síðustu áramót samanborið við 482 árið á undan.

Eigið fé nam 179 milljónum í fyrra en 209 árið á 2014. Skuldir Ísfugls námu 324 millj¬ ónum króna í fyrra samanborið við 273 árið á undan.