Sú töf sem orðin er á afgreiðslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) á aðstoð til Íslands og þeim lánum frá öðrum sem í kjölfarið fylgja hefur margháttuð slæm áhrif.

Þetta kemur fram í Morgunkorni Glitnis í morgun.

„Í fyrsta lagi tefur hún fyrir að lag komist á gjaldeyrismarkað og útflutningstekjur skili sér inn í hagkerfið þar sem margir útflytjendur virðast halda að sér höndum með flutning gjaldeyristekna inn í kerfið í þeirri miklu óvissu sem nú ríkir,“ segir í Morgunkorni.

„Í öðru lagi gengur hægt og sígandi á gjaldeyrisforðann, sem dregur úr slagkrafti Seðlabankans til að koma fótum undir krónuna þegar henni verður fleytt. Auk þess er hætta á að töfin festi í sessi gjaldeyrisskömmtun með tvígengiskerfi, þar sem eitt gengi krónu mun ríkja á innlendum markaði og annað utan landsteinanna.“

Þá segir Greining Glitnis að töfin og óvissan dragi enn kjarkinn úr erlendum fjárfestum sem eiga krónur í tiltölulega seljanlegum eignum á borð við ríkisbréf og innstæðubréf og eykur þar með líkur á verulegum fjármagnsflótta þegar krónunni verður fleytt á ný.

„Því má ljóst vera að afar brýnt er að því ástandi óvissu og óskilvirks gjaldeyrismarkaðar sem nú ríkir linni sem allra fyrst,“ segir í Morgunkorni Glitnis.

Gjaldeyrisforðinn dugar út 1F 2009

Gjaldeyrisforði Seðlabankans ætti að duga til innflutnings vöru og þjónustu fram yfir fyrsta fjórðung næsta árs að öðru óbreyttu, jafnvel þótt lítið sem ekkert innflæði komi á móti frá útfluttum vörum og þjónustu.

„Brýnt er hins vegar að heimtur gjaldeyristekna inn í hagkerfið verði bættar sem allra fyrst, því afar varasamt er að stóla lengi á gjaldeyrisforðann til fjármögnunar innflutnings,“ segir í Morgunkorni.

Gjaldeyrisforði Seðlabanka í októberlok var tæplega 410 milljarðar króna samkvæmt gögnum á heimasíðu bankans. Það jafngildir 3,4 milljörðum Bandaríkjadala eða 2,7 milljörðum evra á lokagengi síðasta mánaðar.

Frá síðustu mánaðamótum nema heildarviðskipti í gjaldeyrisuppboðum Seðlabankans 60 milljónum evra, en stærstur hluti framboðs á evrum í uppboðum þessum virðist koma úr gjaldeyrisforða bankans.

Þá vegur Greining Glitnis athygli á því að í gær urðu engin viðskipti í uppboði bankans þar sem hæsta kauptilboð var nokkru lægra en lægsta sölutilboð.

Mikil óvissa á gjaldeyrismarkaði

Þá kemur fram í Morgunkorni að ríkisstjórnin vinnur nú að því að efla gjaldeyrisforða Seðlabankans með stórfelldum lántökum svo bankinn hafi öflugt vopnabúr þegar krónunni verður fleytt að nýju.

„Á meðan það tefst, og gjaldeyrismál landsins eru í jafnmiklum lamasessi og nú er raunin, gengur smátt og smátt á gjaldeyrisforðann sem fyrir er,“ segir í Morgunkorni.

„Mikil vanhöld virðast á því að útflutningstekjur skili sér á innlendan gjaldeyrismarkað, og hefur því komið til kasta Seðlabanka að leggja til gjaldeyri til innflutnings úr gjaldeyrisforðanum. Að þessu leyti má segja að gjaldeyrismarkaðurinn sé í raun tvískiptur um þessar mundir.“