Fasteignaverð á landinu öllu breyttist lítið á milli febrúar og marsmánaða, eða um 0,32% samkvæmt tölum Hagstofunnar.

Fasteignaverð á landsbyggðinni hækkaði um 1,5% og fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um nærri 1%. Verð á einbýli á höfuðborgarsvæðinu lækkaði aftur á móti um 2,4%.

Tólf mánaða hækkun fasteignaverðs fyrir landið allt nemur nú 13,9%. Tólf mánaða breyting lækkar nú milli mánaða en það er annan mánuð í röð sem hún gerir það eftir nær samfellda hækkun allt síðastliðið ár. Þetta kemur fram í Vegvísi Landsbankans.

Fasteignaverð að nema staðar?

Verðlækkun einbýlis á höfuðborgarsvæðinu um 2,4% milli mánaða er mesta lækkun sem mælst hefur frá því í október 2001 þegar það lækkaði um 2,6% frá fyrri mánuði.

„Það skal þó haft í huga að miklar sveiflur geta verið milli mánaða, en verðið hefur því sem næst staðið í stað síðustu 3 mánuði eins og sést á meðfylgjandi mynd. Tólf mánaða hækkun einbýlis nemur nú 13,6% en í janúar var tólf mánaða hækkunin 17,8% - sú mesta frá því um mitt ár 2006. Þessar niðurstöður styðja áður birtar tölur Fasteignamats ríkisins um að verulega sé að hægjast um á fasteignamarkaði. Við væntum þess að sú þróun haldi áfram og gerum ráð fyrir að fasteignaverð geti lækkað um allt að 5% á næstu 12 mánuðum,“ segir í Vegvísi Landsbankans.