Hlutabréf hækkuðu í verði í Asíu í dag. MSCI Asia Pacific vísitalan hafði hækkað um 0,6% stuttu fyrir lokun í Tókýó, eftir tveggja daga lækkun upp á 2%. Allar asískar vísitölur hækkuðu, utan vísitölunnar í Tævan. Nikkei 225 vísitalan japanska var nærri núllinu; hafði hækkað um 0,2% rétt fyrir lokun markaða. Hang Seng í Hong Kong hækkaði um 2%, eftir að hafa lækkað um 9,7% á þremur dögum.