Hækkun varð á mörkuðum Evrópu í dag. Góðar fréttir af hagnaði Goldman Sachs á 2. ársfjórðungi höfðu jákvæð áhrif á evrópska banka, einkum Barclays sem hækkaði um 3,5%.

FTSEurofirst hækkaði um 0,5% í dag.

Í Lundúnum hækkaði FTSE 100 vísitalan um 1,2%, í Amsterdam hækkaði AEX vísitalan um 0,2% og í Frankfurt hækkaði DAX vísitalan um 1%.

Í París hækkaði CAC 40 vísitalan um 0,6% og í Sviss hækkaði SMI vísitalan um 0,2%.

Í Kaupmannahöfn hækkaði OMXC vísitalan um 2,2%, í Osló hækkaði OBX vísitalan um 1% og í Stokkhólmi hækkaði OMXS vísitalan einnig um 1%.