Ernst & Young í Bandaríkjunum hefur tilnefnt Guðmund Fertram Sigurjónsson, forstjóra og stofnanda Kerecis, frumkvöðul ársins 2021. Verðlaunin eru á meðal þeirra stærstu sem í boði eru fyrir frumkvöðlastörf og eru þau viðurkenning til framúrskarandi frumkvöðla fyrir leiðtogahæfni, árangur í rekstri, samfélagsábyrgð og uppbyggingu fyrirtækja. Guðmundur Fertram var valinn af óháðri nefnd sem tilkynnti niðurstöðuna í vikunni sem er að líða.

„Verðlaunin eru viðurkenning á tækninni okkar og hversu vel hún nýtist alvarlega slösuðum og þeim sem þjást af þrálátum sárum“ er haft eftir Guðmundi í fréttatilkynningu.

„Ég er afskaplega þakklátur þeim sem slógust í hópinn við stofnun fyrirtækisins, vísindaráðinu okkar, fjárfestum, Fanneyju eiginkonu minni og öllum í Kerecis – heiðurinn er auðvitað þeirra allra! Þetta er frábær dagur fyrir Kerecis og þær þúsundir sjúklinga sem verið er að meðhöndla um allan heim með sáraroðinu í dag,“ segir Guðmundur.

Undanfarin 35 ár hefur Ernst & Young heiðrað frumkvöðla sem hafa sýnt fram á metnað, kjark og hugvitssemi sem skilar sér í góðum árangri fyrirtækja og hafa víðtæk og jákvæð áhrif á iðnað og umhverfi. Með tilnefningunni verður Guðmundur Fertram meðlimur hóps virtra frumkvöðla sem hafa unnið til verðlauna Ernst & Young.

Kerecis er brautryðjandi í framleiðslu á lækningavörum úr þorskroði og fitusýrum sem verja líkamsvefi og græða. Vörur fyrirtækisins eru framleiddar á Ísafirði, vöruþróun fer fram í Reykjavík og sölu- og markaðsstarf á Washington D.C. svæðinu í Bandaríkjunum og í Sviss.

Guðmundur Fertram Sigurjónsson valinn frumkvöðull ársins 2021 hjá EY í Bandaríkjunum
Guðmundur Fertram Sigurjónsson valinn frumkvöðull ársins 2021 hjá EY í Bandaríkjunum
© Aðsend mynd (AÐSEND)