Guðmundur Löve hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Sambands íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga, SÍBS. Hann tók formlega við starfinu 1. apríl sl. Þetta kemur fram í tilkynningu frá SÍBS.

Guðmundur er fæddur 1967, er með MBA gráðu frá Viðskiptaháskólanum í Osló og hefur að baki langa reynslu af fyrirtækjastjórnun hér á landi og erlendis. Eiginkona Guðmundar er Hrefna Björg Þorsteinsdóttir arkitekt og eiga þau tvö börn.