Guðni Th. Jóhannesson hefur verið ráðinn lektor í sagnfræði við Sagnfræði- og heimspekideild Hugvísindasviðs Háskóla Íslands (HÍ). Um er að ræða starf lektors í sagnfræði 19. og 20. aldar með áherslu á sögu Íslands.

Fram kemur í tilkynningu frá HÍ að Guðni, sem getið hefur sér gott orð fyrir rannsóknir sínar, er ekki ókunnugur störfum við Háskóla Íslands því hann sinnti stundakennslu við skólann á árunum 1996-1998 og 2004-2007. Hann hefur sömuleiðis verið ötull á ritvellinum og skrifaði m.a. bókina Hrunið, sem fjallar um efnahagshrunið og kom út árið 2009.