Ferðatæknifyrirtækið Guide to Iceland hefur breytt nafni sínu í Travelshift. Þetta kemur fram í tilkynningu. Vörumerkið Guide to Iceland verður áfram nýtt til markaðssetningar og þjónustu við ferðamenn til Íslands. Auk Guide to Iceland, rekur félagið Guide to Europe og Guide to the Philippines.

Travelshift var stofnað árið 2012 og rekur meðal annars Guide to Iceland, markaðstorg sem er notað af yfir 1500 ferðaþjónustufyrirtækjum á Íslandi. Yfir milljón ferðamenn heimsækja vefsíðuna í hverjum mánuði.

Jakob Ásmundsson, fjármálastjóri Travelshift:

"Nafnabreytingin er til marks um vaxandi umsvif fyrirtækisins erlendis. Við höfum verið að fjárfesta í spenanndi verkefnum utan landsteinanna og eru þau þegar byrjuð að skila góðum árangri. Nafnið lýsir alþjóðlegri starfsemi okkar og þeirri nýstárlegu tækni sem við höfum þróað, ásamt því að höfða til erlendra fjárfesta."