Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, hefur lýst þeirri skoðun sinni að það komi ekki til greina að þjóðin beri kostnað af skuldbindingum bankana vegna icesave reikninganna. Hann segir að þjóðin geti það ekki.

Þetta kemur fram á vef Frjálslynda flokksins .

Þar kemur fram að til þess gæti komið að einungis vaxtakostnaður þjóðarinnar næmi um 130 milljörðum á ári af óreiðuskuldum banka sem áttu að heita í einkaeigu.

„Slíkt sé engan veginn ásættanlegt,“ segir á vef flokksins.

„Þess vegna eiga Íslendingar frekar að taka slaginn og láta á það reyna hvort það geti virkilega verið að ein þjóð beri ábyrgð á fyrirtæki sem er í einkaeigu,“

Þá kemur einnig fram að Guðjón Arnar hvetur til þess að sú „grjótharða“ stefna verði tekin að við látum ekki kúga okkur til að borga.

„Sætti menn sig ekki við það verði málið einfaldlega að milliríkjadeilu. Þann slag eigum við að taka,“ segir jafnframt.