Einar Örn Ólafsson hefur verið ráðinn forstjóri Skeljungs hf. Hann tekur við starfinu af Gunnari Karli Guðmundssyni, sem hefur verið forstjóri félagsins undanfarin sex ár en Gunnar Karl starfaði áður sem fjármálastjóri félagsins.

Einar Örn lauk véla- og iðnaðarverkfræði við Háskóla Íslands árið 1997 og MBA meistaraprófi frá New York University árið 2003. Stærstan hluta starfsferils síns hefur Einar Örn unnið hjá Íslandsbanka og forverum hans, þar sem hann hefur gegnt ýmsum störfum, síðast sem forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar frá október 2008.

Gunnar Karl hættir frá og með næstu mánaðamótum en ekki er vitað hvað hann tekur sér fyrir hendur og hann sagðist ekki geta upplýst það í samtali við Viðskiptablaðið.