Gunnar Karl Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Skeljungs og stjórnarformaður Tryggingamiðstöðvarinnar hefur verið ráðinn forstjóri MP Banka.

Gunnar Karl er fæddur árið 1959 og lauk hagfræðiprófi frá Ohio University árið 1985. Gunnar hefur lengst af starfað hjá Skeljungi hf.  aðallega við fjármálastjórnun og áhættustýringu. Hann varð aðstoðarforstjóri Skeljungs árið 2000 og síðan forstjóri árið 2003.

Í tilkynningu kemur fram að Gunnar Karl hefur gegnt fjölda trúnaðarstarfa í íslensku atvinnulífi og er nú m.a. stjórnarmaður í Samtökum atvinnulífsins og Samtökum verslunar og þjónustu. MP Banki stendur nú á þeim tímamótum að vera orðinn alhliða viðskiptabanki. Í tilkynningu kemur fram að það er mat stjórnar MP Banka að reynsla Gunnars og þekking á sviði stjórnunar og stefnumótunar muni nýtast honum afar vel til að leiða uppbyggingu og sókn bankans.

Styrmir Þór Bragason, fráfarandi forstjóri,  mun um 12 mánaða skeið starfa að verkefnum tengdum fjárfestingabankahluta MP Banka, sitja í stjórnum nokkurra félaga fyrir bankann  og sinna verkefnum  erlendis að því er segir í tilkynningu.

MP Banki var stofnaður árið 1999 og fagnaði 10 ára afmæli sínu þann 11. maí síðastliðinn.  Fyrirtækið fékk fjárfestingarbankaleyfi árið 2003 og síðan viðskiptabankaleyfi seint á síðasta ári.  MP banki skilaði 860 milljóna króna hagnaði árið 2008 og 15% ávöxtun eigin fjár.

Í tilkyningu segir að viðskiptavinum hefur fjölgað mjög mikið undanfarna mánuði og nú hefur bankinn haslað sér völl á almennum viðskiptabankamarkaði til að geta veitt alhliða þjónustu. Bankinn er með hæstu markaðshlutdeild  í viðskiptum með skuldabréf í Kauphöll Íslands og er aðalmiðlari í öllum flokkum ríkistryggðra verðbréfa.