Leiðandi hagvísir Analytica, sem gefur vísbendingu um þróun landsframleiðslu að sex mánuðum liðnum, hækkaði áfram í apríl og hefur nú ekki verið hærri frá árinu 2007. Leiðandi hagvísirinn hefur nú hækkað samfleytt frá því í september 2020. Í tilkynningu Analytica segir að þrátt fyrir ýmsa óvissuþætti séu horfur á efnahagsbata fram eftir seinni árshelmingi. 

Fjórir af sex undirliðum hagvísisins hækkuðu á milli mánaða en stærsta framlag til hækkunar er vegna fjölgunar ferðamanna, aukins fiskafla og meiri vöruinnflutnings.

„Þrátt fyrir sterkar jákvæðar vísbendingar þá er óvissa tengd ferðaþjónustu, stríðinu í Úkraínu og framgangi COVID-19 farsóttarinnar. Framvindan á fjármálamarkaði er einnig meðal óvissuþátta vegna verðbólgu og áforma ýmissa seðlabanka um að minnka peningalega þenslu.“ 

Hagvísirinn er vísitala sem gefur vísbendingu um vendipunkta í efnahagsumsvifum að sex mánuðum liðnum.