Hæstiréttur Íslands ómerkti dóm Héraðsdóm Reykjavíkur frá október 2015 í Marple-málinu svokallaða í dag vegna vanhæfi sérhæfðs meðdómara í málinu, Ásgeirs Brynjars Torfason lektors við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Vísir greindi fyrst frá en dóminn er hægt að lesa hér.

Nú þarf að taka aðalmeðferð málsins á ný fyrir héraðsdómi. Verjendur töldu Ásgeir Brynjar vanhæfan í málinu vegna stjórnarsetu hans í félaginu Gagnsæi sem berst gegn spillingu sem og vegna ummæla sem hann lét falla í grein í Fréttablaðinu.

Sakfelldir í Héraðsdómi árið 2015

Árið 2015 sakfelldi Héraðsdómur Reykjavíkur þrjá af fjórum sakborningum í Marple málinu Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrum forstjóri Kaupþings í Lúxemborg og Skúli Þorvaldsson voru hver um sig dæmdir í sex mánaða fangelsi. Magnús Guðmundsson, fyrrum forstjóri Kaupþings, fékk þyngsta dóminn en hann var dæmdur til 18 mánaða fangelsisvistar.

Einnig voru gerð upptæk öll verðbréf, allur fjárfestingarsjóður og öll innstæða á hlaupareikningi, samtals 6.763.253 evrur, sem yfirvöld í Lúxemborg lögðu hald á undir rannsókn málsins inni á reikningi Marple Holding í Lúxemborg. Í málinu var ákært fyrir fjár­drátt, umboðssvik, pen­ingaþvætti og hylm­ingu.