Sjávarútvegsfyrirtækin Vísir hf. og Þorbjörn í Grindavík hafa hætt við að sameinast. Þau höfðu frá því í haust staðið í sameiningarviðræðum. Fyrirtækin hyggjast þó halda áfram samstarfi.

Í haust skipuðu þau fjölmarga vinnuhópa til að skoða alla snertifleti og hafa þeir nú skilað inn tillögum sínum að því er fram kemur í tilkynningu frá félögunum.

Sjá einnig: Vísir og Þorbjörn stefna á sameiningu

„Eftir yfirferð þeirra er niðurstaðan sú að fara ekki með sameiningarmál lengra að sinni, en halda þess í stað góðu samstarfi Þorbjarnar hf. og Vísis hf. áfram og nýta niðurstöðu vinnuhópanna til að styrkja það samstarf enn frekar. Þrátt fyrir þessa niðurstöðu nú, telja eigendur fyrirtækjanna tveggja að hún útiloki ekki aðra möguleika í framtíðinni,“ segir í tilkynningunni.

Vísir og Þorbjörn eru svipuð að stærð og hafa í gegnum árin unnið saman. Þau eiga meðal annars félög saman á borð við Haustak, Codland og sölufyrirtæki á Grikklandi.

Yfir 600 manns vinna hjá fyrirtækjunum tveimur sem samanlagt hafa um 44.000 tonn af aflaheimildum.