Hagar hf. hafa sett fram kauptilboð í Lyfju hf. Ríkissjóður Íslands er seljandi, en Ríkissjóður á Lyfju í gegnum dótturfélag Seðlabankans, Lindarhvoll ehf. Lyfja rekur alls 39 apótek. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem Haga til Kauphallarinnar.

Fyrirtækjaráðgjöf Virðingar hf. annast söluferlið fyrir hönd seljanda. „Samkvæmt söluferlinu stóð fjárfestum til boða að skila inn óskuldbindandi tilboðum í allt hlutafé í Lyfju þann 5. október 2016. Tilteknir fjárfestar voru teknir áfram í annan hluta söluferlis og rann skilafrestur skuldbindandi tilboða út kl. 16 í dag, mánudaginn 7. nóvember 2016. Eftir að skuldbindandi tilboð berast í félagið ákveður seljandi hvort halda eigi áfram með söluferlið, með einum eða fleiri aðilum,“ segir í tilkynningunni.

„Hagar hafa enn sem komið er takmarkaðan aðgang að upplýsingum um hið selda. Tilboðið er með fyrirvara um áreiðanleikakönnun og niðurstöðu hennar og samþykki Samkeppniseftirlitsins. Gangi viðskiptin eftir má gera ráð fyrir að gengið verði frá viðskiptunum fyrir mitt ár 2017,“ er enn fremur tekið fram.