Samkeppniseftirlitið hefur gert sátt við Haga en samkeppniseftirlitið hefur haft til rannsóknar hvort verslanir Bónus, sem er í eigu Haga, og átta önnur kjötvinnslufyrirtæki hafi brotið gegn 10. grein samkeppnislaga. Meint brot snýr að tvíhliða samningum eða samstillum aðgerðum í tengslum við smásöluverðlagningu á kjöti og unnum kjötvörum sem kjötvinnslurnar hafa verðmerkt fyrir Haga. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu.

„Eftir umfangsmikla athugun á m.a. tölvupóstssamskiptum kjötvinnslufyrirtækjanna og Haga kynnti Samkeppniseftirlitið í júlí sl. umræddum fyrirtækjum þá frumniðurstöðu að Hagar og einstakar kjötvinnslur hefðu brotið samkeppnislög í tengslum við smásöluverðlagningu á kjötvörum í verslunum Bónuss. Var kjötvinnslunum og Högum gefinn kostur á að tjá sig um þessa frumniðurstöðu,“ segir í tilkynningunni.

270 milljón króna sekt

Í kjölfarið leituðu Hagar til Samkeppniseftirlitsins og óskuðu eftir því að ljúka málinu með sátt. Sáttin felur í sér að Hagar viðurkenna brot á samkeppnislögum með samningum eða samstillum aðgerðum við umræddar kjötvinnslur.

Hagar fallast á að greiða 270 milljónir króna í stjórnvaldssekt vegna brotanna og samþykkja einnig að grípa til ráðstafana sem ætlað er að efla samkeppni í sölu á kjötvörum, neytendum til hagsbóta. „Í þessu felst m.a. að Hagar skuldbinda sig til þess hætta öllum samskiptum við kjötvinnslufyrirtæki um smásöluverð í verslunum Haga og hætta í áföngum að taka við vörum frá þeim sem merktar eru með leiðbeinandi smásöluverði. Þá er lagt bann við því að verslanir Haga gefi upp afslátt á kjötvörum nema um raunverulega lækkun frá gildandi smásöluverði sé að ræða.“

Í tilkynningu segir að rétt sé að taka fram að Hagar hafi í samskiptum við Samkeppniseftirlitið lagt á það áherslu að félagið hafi ekki haft ásetning til þess að raska samkeppni. Við það mat á eðli málsins verði að horfa til þess að löng höfð sé fyrir forverðmerkingum hjá öllum fyrirtækjum á matvörumarkaði.

Auðveldar eftirlitinu

Samkeppniseftirlitið segir að sáttin auðveldi rannsókn. Auk þess hafi hún í för með sér breytingar á markaðnum mun fyrr en ella og jákvæð áhrif fyrir samkeppni og neytendur.

Með sáttinni er málinu lokið gagnvart Högum. Þáttur kjötvinnslufyrirtækjanna, sem eru Kjarnafæði hf, Síld og fiskur ehf., Sláturfélag Suðurlands svf., Norðlenska ehf., Kaupfélag Skagfirðinga svf., Kjötbankinn ehf., Reykjagarður hf. og Matfugl ehf., er enn til rannsóknar.

Hyggjast beita sér frekar

„Sáttin við Haga er liður í almennri viðleitni Samkeppniseftirlitsins að tryggja að samstarf m.a. kjötvinnslufyrirtækja og matvöruverslana raski ekki samkeppni. Í aðgerðunum felst að aðkoma birgja að merkingum á smásöluverði Haga leggst af á þeim sviðum sem mál þetta tekur til auk þess sem breytingar verða á viðskiptaháttum á matvörumarkaði.

Má búast við að eftirlitið beiti sér frekar á þessu sviði og gagnvart fyrirtækjum sem ekki eru hluti af framangreindu stjórnsýslumáli.“