Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hækkaði um 0,38% í tæplega 451 milljóna króna viðskiptum í dag. Það sem af er ári hefur vísitalan hækkað um 5,49%. Gengi bréfa Haga hækkaði um 1,02%, Regins um 0,69% og Icelandair um 0,68%. Ekkert félag á Aðallista Kauphallarinnar lækkaði í verði í dag.

Á First North markaðnum hækkaði Century Aluminum um 13,64% í 187.500 króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,04% í 3,3 milljarða króna viðskiptum í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,08% en sá óverðtryggði hækkaði um 0,07%.