Bílaumboðið BL ehf. hagnaðist um 332 milljónir króna á síðasta ári, en þetta kemur fram í ársreikningi fyrirtækisins. Dróst hagnaðurinn saman á milli ára en ári fyrr nam hann 469 milljónum króna.

Rekstrartekjur fyrirtækisins jukust um rúmlega 3,7 milljarða króna á milli ára og námu núna 13,7 milljörðum króna. Aftur á móti jukust rekstrargjöld einnig, eða um rúma 3 milljarða króna, og námu 13,4 milljörðum. Rekstrarhagnaður félagisns nam því 358 milljónum króna.

Eignir BL ehf. námu 3,85 milljörðum króna í lok ársins en skuldir voru 3,36 milljarðar króna. Nam eigið fé fyrirtækisins því 489 milljónum króna í lok ársins.

Erna Gísladóttir er forstjóri BL.