Jón Guðmann Pétursson - Hampiðjan
Jón Guðmann Pétursson - Hampiðjan
© BIG (VB MYND/BIG)
Hagnaður Hampiðjunnar á fyrstu sex mánuðum ársins nam 2,6 milljónum evra, jafnvirði um 426,5 milljónum króna, samanborið við 1,6 milljónir evra á fyrstu sex mánuðum ársins 2010. Rekstrartekjur voru 20,4 milljónir evra og drógust saman um 5,8% frá sama tímabili árið áður. Hagnaður fyrir fjárliði (EBITDA) var 16% af rekstrartekjum, eða 3,3 milljónir evra en var 4,2 milljónir á sama tímabili í fyrra. Fjármunatekjur ásamt hlutdeild í hagnaði HB Granda að frádregnum fjármagnsgjöldum voru 0,4 milljónir til tekna en voru 1,3 milljónir til gjalda á sama tímabili í fyrra.

Jón Guðmann Pétursson, forstjóri félagsins, segir í tilkynningu: „Fimmtungs tekjusamdráttur Swan Net Gundry á Írlandi skýrir að stærstum hluta sölusamdrátt samstæðunnar frá sama tíma í fyrra. Rekstur netaverkstæðanna á Íslandi, Danmörku og Nýja Sjálandi gekk vel á tímabilinu. Minniháttar tap var á rekstri netaverkstæðanna í Namibíu, Kanada og Bandaríkjunum. Afkoma verksmiðjunnar í Litháen var lakari en á sama tíma í fyrra en hækkun rekstrarkostnaður, aðallega hráefna, dró úr afkomu félagsins. Sala á ofurtógi til olíuiðnaðar var minni en á sama tíma í fyrra en gott útlit er fyrir sölur á seinni hluta ársins.“

Heildareignir voru 80,6 milljónir í lok tímabilsins. Eigið fé nam 41,1 milljón, en af þeirri upphæð eru 5,2 milljónir hlutdeild minnihluta í eigin fé dótturfélaga. Hlutfall eigin fjár, þegar hlutdeild minnihluta er meðtalin, var í lok tímabilsins 51% af heildareignum samstæðunnar.

Vaxtaberandi skuldir námu í lok tímabilsins 32,1 milljón og höfðu lækkað um 1,6 milljónir frá áramótum.

Árshlutareikningur Hampiðjunnar