Hjallastefnan, sem rekur grunn- og leikskóla undir sama nafni, hagnaðist um tæpar 42 milljónir á rekstrarárinu 2013-2014 (1. ágúst 2013 til 31. júlí 2014). Þeta er örlítið lægri hagnaður en á síðasta ári en þá var hann rúmar 58 milljónir.
Tekjur Hjallastefnunnar voru 2.885 milljónir á síðasta ári. Samtals störfuðu 595 starfsmenn í 394 ársstörfum en heildar launagreiðslur voru 1.625 milljónir króna. Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir í lok árs rúmum 708 milljónum.
Skuldir félagsins aukast lítillega milli ára, þær voru 708 milljónir í lok júlí 2014 en var 644 milljónir á sama tíma fyrir ári.
Stærsti einstaki hluthafi Hjallastefnunnar er Margrét Pála Ólafsdóttir en hún á 86,08% í félaginu. Alls eru hluthafar 21.