Hagnaður Landsnets hf. samkvæmt rekstrarreikningi nam 2.183 milljónir króna fyrir liðið ár, samanborið við hagnað að fjárhæð 801 milljón króna á árinu 2012.

Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði (EBIT) nam 6.568 milljónir króna samanborið við 5.306 milljónir króna á fyrra ári og hækkar því um 1.262 milljónir á milli ára. Hækkun á rekstrarhagnaði fyrir fjármagnsliði skýrist einkum af hækkun gjaldskrár til stórnotenda í byrjun árs.

Hrein fjármagnsgjöld nema samtals 3.870 milljónum króna á árinu 2013 á móti 4.339 milljónum á árinu 2012. Þau lækka um 469 milljónum króna en það skýrist einkum af lægri verðbólgu en stærsti hluti lánasafns félagsins er í íslenskum krónum.

Fjárfestingar voru nokkuð hærri á árinu en á fyrra ári og numu um 6.506 milljónir króna samanborið við 1.591 milljónir króna árið áður. Helstu fjárfestingar ársins voru lagning sæstrengs til Vestmannaeyja og bygging launaflsvirkis við Grundartanga, en báðar þessar fjárfestingar eru til að auka áreiðanleika afhendingar raforku í flutningskerfinu. Þá var einnig lokið byggingu tengivirkis og línu við Búðarháls. Heildarfjárhæð þessara fjárfestinga nam um 5.000 milljónir króna.

Eiginfjárhlutfall í árslok var 19,9% samanborið við 17,7% í lok fyrra árs. Eigið fé í árslok nam 15.446 milljónir króna samanborið við 13.263 í lok árs 2012. Heildareignir félagsins í árslok námu 77.608 milljónum samanborið við 74.873 milljónir króna í lok fyrra árs. Heildarskuldir námu 62.162 milljónum króna samanborið við 61.610 milljónir króna í lok fyrra árs.

Lausafjárstaða félagsins er sterk, í árslok nam handbært fé 9.917 milljónum króna. Handbært fé frá rekstri nam 7.733 milljónum króna árið 2013 samanborið við 5.808 milljónir króna árið 2012.

Rekstrarniðurstaða ársins er betri en áætlanir félagsins gerðu ráð fyrir og liggur það aðallega í jákvæðari niðurstöðu fjármagnsliða. Rekstrarhæfi félagsins er mjög gott. Samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir árið 2014 mun handbært fé standa undir fjárfestingum og afborgunum lána.

Ársreikningur Landsnets hf. var samþykktur á fundi stjórnar 12. febrúar 2014.