Hagnaður Össurar hf og hagnaður á hlut jukust um 8% milli ára. Hagnaðurinn nam 41 milljón Bandaríkjadala, eða 4,8 milljörðum króna, og 9% af sölu, samanborið við 38 milljónir dala og 9% af sölu 2012. Ársreikiningur fyrirtækisins var birtur í dag.

Sala nam 436 milljónum Bandaríkjadala, samanborið við 399 milljónir dala 2012. Söluvöxtur var 9%, þar af 2% innri vöxtur, hvortveggja mælt í staðbundinni mynt.

Sala á spelkum og stuðningsvörum jókst um 12%, þar af 2% innri vöxtur, hvort tveggja mælt í staðbundinni mynt.

Hér má sjá ársreikninginn.