Hagnaður Atorku Group, móðurfélags, fyrir skatta fyrstu sex mánuði ársins var 4,9 milljarðar króna samanborið við 418 milljónir króna á sama tímabili í fyrra, segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands.

Á öðrum ársfjórðungi 2006 var afkoma fyrir skatta 1.041 milljónir króna samanborið við 241 milljón króna tap á öðrum ársfjórðungi 2005.

Hagnaður á fjórðungnum eftir skatta var 856 milljónir, en hreinar fjármunatekjur voru 1.224 milljónir.

Greiningardeild Glitnis spáði að hagnaðurinn næmi 275 milljónum króna og að hreinar fjármunatekjur væru 500 milljónir króna.

?Afkoma Atorku á fyrri árshelming ársins var góð sérstaklega sé tekið mið af ytri aðstæðum á hlutabréfamörkuðum. Hagnaðurinn hefur aukist verulega miðað við sama tímabil í fyrra og umsvif Atorku í fyrirtækjaverkefnum hafa aukist verulega og eru í dag tæplega 80% af eignasafninu," segir Magnús Jónsson forstjóri Atorku.

"Á síðustu mánuðum hefur verið unnið að sameiningum og endurskipulagningu á þeim félögum sem tilheyra heilbrigðis- og fyrirtækjamarkaði og eftir þær breytingar eru félögin betur í stakk búin til þess að efla markaðssókn og vaxa. Atorka mun horfa til nýrra verkefna á næstu misserum auk þess að halda áfram að styðja við frekari vöxt þeirra félaga sem í dag eru í eignasafni félagsins."

Á næstu 6-12 mánuðum má vænta þess að Atorka muni stefna að því að ljúka að minnsta kosti einu fyrirtækjaverkefni en það getur til að mynda verið með skráningu, sölu eða sameiningu við stærra félag. Atorka mun horfa í auknum mæli til nýrra fjárfestinga í félögum sem starfa á vaxtarmörkuðum sem tengjast hnattrænni þróun," sagði Magnús.