Hagnaður Citigroup nam 2,2 milljörðum dala á þriðja ársfjórðungi, nokkru hærra en greiningaraðilar áttu von á. Er það þriðji ársfjórðungurinn í röð sem félagið skilar hagnaði.

Markaðsaðilar bjuggust við um 6 centa hagnaði á hlut en raunin varð centi hærri. Hagnaður félagsins er viðsnúningur frá sama tímabili í fyrra þegar bankinn tapaði 3,2 milljörðum króna.

Bandaríska ríkið á 12% hlut í Citigroup.