Hagnaður Colgate-Palmolive, sem er best þekkt fyrir framleiðslu á tannkremi og sápum, óx um 22% á þriðja ársfjórðungi ársins. Lágt gengi Bandaríkjadals, aukin útflutningur og hagræðing í rekstri er sögð helsta ástæða góðs gengis fyrirtækisins.

Innkoma Colgate-Palmolive á þriðja ársfjórðungi var 420 milljón Bandaríkjadalir miðað við 344 milljón dali fyrir sama tímabil á síðasta ári.