Afkoma Íslandsbanka á fyrstu þremur ársfjórðungunum 2010 var jákvæð um 13,2 milljarða króna samkvæmt óendurskoðuðum árshlutareikningi. Eiginfjárhlutfall bankans var 22,6% en lágmarkið sem Fjármálaeftiriltið hefur sett bönkunum er 16%. Arðsemi eigin fjár var 17,6%. Tekjuskattur tímabilsins er áætlaður 3,9 milljarðar króna.

Íslandsbanki birti uppgjör sitt fyrir fyrstu níu mánuði ársins í dag. Hreinar vaxtatekjur námu 30,3 milljörðum króna á tímabilinu og hreinar þóknunartekjur námu 5,2 milljörðum króna.

Að jafnaði störfuðu 1.065 starfsmenn hjá bankanum á tímabilinu.

Heildarstærð efnahagsreiknings í lok septembar var 714,8 milljarðar króna. Heildarútlán til viðskiptavina og fjármálafyrirtækja námu um 563,7 milljörðum króna og innlán námu um 459,2 milljörðum króna í lok tímabilsins.

Eigið fé nam 105,2 milljörðum og eins og áður segir var eiginfjárhlutfall 22,6% við lok tímabils. Vaxtamunur af meðalstöðu heildareigna var 5,7% og hlutfall heildarinnlána af heildarútlánum var 81,5% í lok september.

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, segir í tilkynningu að rekstruinn sé í samræmi við áætlanir. „Við gerum ráð fyrir að rekstrarumhverfi bankans muni áfram einkennast af töluverðri óvissu. Íslandsbanki er hinsvegar vel í stakk búinn til þess að takast á við þá óvissu þar sem eiginfjárstaða bankans er sterk. Eiginfjárhlutfall bankans er 22,6% sem er vel fyrir ofan 16% lágmark Fjármálaeftirlitsins.

Vinna að lausnum á skuldavanda einstaklinga og fyrirtækja hefur verið í forgrunni á þessu ári auk þess sem við höfum á síðustu mánuðum unnið að endurreikningi á bílalánum fyrir um 5000 viðskiptavini,“ segir Birna í tilkynningu.

Þá hefur Íslandsbanki ákveðið að bjóða viðskiptavinum sínum sem skulda húnæðislán í erlendum gjaldmiðlum að endurreikna þau í samræmi við ákvæði frumvarps til breytinga á vaxtalögum sem viðskiptaráðherra hefur lagt fyrir Alþingi enda þótt enn ríki óvissa um lögmæti erlendra húsnæðislána bankans og nýlegir héraðsdómar renni stoðum undir lögmæti samninganna.  Þessi vinna er þegar hafin og gerum við ráð fyrir að henni ljúki á fyrstu mánuðum nýs árs.“