Bresk-hollenska olíufyrirtækið Royal Dutch Shell greindi frá því í gær að hagnaður félagsins hefði aukist um 18% á öðrum ársfjórðungi samanborið við sama tíma í fyrra. Samtals nam hagnaður Shell 8,67 milljörðum Bandaríkjadala, miðað við 7,32 milljarða dala fyrir einu ári. Félagið sagði að góður hagnaður af olíuhreinsunarstarfsemi hefði náð að vega upp á móti minnkandi framleiðslu í Nígeríu sökum tíðra árása herskárra hópa á olíumannvirki Shell þar í landi.