Vöruviðskiptahallinn í nóvember í ár var hagstæðari í ár um sem nemur tæpum þremur milljörðum en á sama tíma í fyrra. Hins vegar var hallinn um 52 milljörðum óhagstæðari á fyrstu 11 mánuðum ársins en á sama tímabili árið áður.

Verðmæti vöruútflutnings á 11 mánaða tímabilinu minnkaði milli ára þó verðmæti iðnaðarútflutnings hafi aukist. Verðmæti sjávarafurða dróst hins vegar töluvert saman. Verðmæti innflutningsins jókst á sama tíma. Í nóvember voru fluttar út vörur fyrir 47,5 milljarða króna og inn fyrir 56,2 milljarða að því er Hagstofan greinir frá.

Vöruviðskiptin í nóvember voru því óhagstæð um 8,7 milljarða króna. Í nóvember 2016 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 11,6 milljarða á gengi hvors árs, svo vöruskiptajöfnuðurinn er hagstæðari í nóvember í ár en í fyrra 2,9 milljarða.

Í janúar-nóvember 2017 voru fluttar út vörur fyrir 474,6 milljarða króna en inn fyrir 626,4 milljarða. Því var halli á vöruviðskiptum við útlönd sem nam tæpum 151,9 milljörðum króna. Á sama tíma árið áður voru vöruviðskiptin óhagstæð um 100,2 milljarða á gengi hvors árs. Vöruviðskiptahallinn í janúar-nóvember 2017 var því 51,7 milljörðum króna hærri en á sama tíma árið áður.

Samdráttur í fiski og lyfjum en aukning í áli

Í janúar-nóvember 2017 var verðmæti vöruútflutnings 21,4 milljörðum króna lægra, eða 4,3% á gengi hvors árs, en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 53,7% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 3,3% hærra en á sama tíma árið áður.

Útflutningur á áli jókst en útflutningur á lyfjum og lækningatækjum dróst saman. Sjávarafurðir voru 38,6% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 15,6% lægra en á sama tíma árið áður. Mestur samdráttur var í útflutningi á frystum flökum og ferskum fiski.

Í janúar-nóvember 2017 var verðmæti vöruinnflutnings 30,3 milljörðum króna hærra, eða 5,1% á gengi hvors árs, en á sama tímabili árið áður. Innflutningur á skipum, hrá- og rekstrarvörum og fólksbílum jókst en á móti dróst innflutningur á flugvélum saman.