Hanna Birna Kristjánsdóttir hefur verið kjörin varaformaður Sjálfstæðisflokksins með 95% atkvæða. Greidd atkvæði voru 1179 og hlaut Hanna Birna samtals 1120 atkvæði.

Hanna Birna var ein í framboði til varaformanns flokksins. Hún gaf ekki kost á sér til formennsku en hlaut þó 18,8% atkvæði í kosningu um embættið fyrr í dag.