Forráðamenn Harman International Industries, sem framleiðir hljómtæki í háum gæðaflokki, hafa samþykkt yfirtökutilboð tveggja einkafjárfestingarsjóða, Kohlberg Kravis Roberts og GS Capital. Verðmæti viðskiptanna eru sögð 7,8 milljarðar Bandaríkjadala og borga einkafjárfestingarsjóðirnir 120 dali á hlut. Þetta er 17% yfirverð miðað við markaðsverðmæti í lok viðskipta á miðvikudag.