Íþróttaviðburðir eins og landsleikurinn slá alltaf í gegn hér, þá er hátíð í bæ,“ segir Guðbjörg R. Guðmundsdóttir, samskiptafulltrúi á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund, um hvaða sjónvarpsefni er vinsælast hjá þeim.

„Leiðarljós var líka mjög vinsælt þegar það var og hét en það hefur enginn þáttur komið í staðinn á svipuðum tíma,“ segir Guðbjörg um sápuóperuna vinsælu sem var einu sinni á dagskrá á RÚV.

„Fólk horfir síðan mikið á Útsvarið og Landann. En saman horfir það mest á fréttirnar, það er töluvert algengt að fólk sitji saman eftir kvöldmatinn og horfi á fréttirnar,“ segir Guðbjörg