Haukur Baldvinsson hefur hafið störf hjá fjármálafyrirtækinu Faktoría þar sem hann mun þjónusta núverandi og nýja viðskiptavini ásamt því að vinna að viðskiptaþróun. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Faktoría.

Haukur lauk BS.c prófi í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2015. Hann hefur áður starfað fjá Málningu hf. og Gráhellu ehf.

Faktoría sem er eitt minnsta fjármálafyrirtæki landsins veitir frían aðgang að einfaldri lausn fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sem gerir viðskiptavinum Faktoría kleift að fjármagna útistandandi viðskiptakröfur.