HB Grandi hf. hefur keypt allt hlutafé framleiðslufyrirtækisins Norðanfisks ehf. á Akranesi af meðeigendum sínum, Pálsgerði ehf., sem er í eigu Kjarnafæðis, Brim hf., og Pétri Þorleifssyni, framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Í tilkynningu kemur fram að kaupverðið er 580 milljónir króna. Fyrir á HB Grandi 23,8% í Norðanfiski.

Norðanfiskur sérhæfir sig í vinnslu sjávarafurða í neytendapakkningar og sér einstaklingum, veitingahúsum, mötuneytum og verslunum fyrir margvíslegum sjávarréttum. Fyrirtækið var stofnað á Akureyri árið 2001 en flutti starfsemi sína tveimur árum síðar til Akraness þegar það sameinaðist fyrirtækinu Íslenskt-Franskt eldhús.

Í tilkynningunni kemur fram kaupin eru liður í áherslu HB Granda á aukna verðmætasköpun úr aflaheimildum félagsins. Með kaupunum hyggst HB Grandi skapa leið fyrir fullunnar afurðir sínar á innanlandsmarkaði.

Starfsmenn Norðanfisks eru 28 talsins. Efnahagur Norðanfisks er traustur og nam vörusalan 1.263 milljónum króna árið 2013. Gert er ráð fyrir að kaupin munu styrkja rekstur félagsins enn frekar. Starfsemin verður áfram á Akranesi og Pétur Þorleifsson verður áfram framkvæmdastjóri fyrirtækisins.