Stjórnir HB Granda hf. og Vignis G. Jónssonar hf. hafa samþykkt kaup HB Granda á öllu hlutafé Vignis G. Jónssonar. Samkomulagið er háð samþykki hluthafafunda félaganna.

Vignir G. Jónsson er rúmlega 40 ára gamalt fyrirtæki á Akranesi sem sérhæfir sig í fullvinnslu á hrognum. Félagið er stór kaupandi loðnuhrogna af HB Granda og stærsti kaupandi grásleppu- og þorskhrogna á landinu. Fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar að 46 ársverk voru unnin hjá félaginu árið 2012 og nam velta félagsins þá 2,4 milljörðum króna.

Stjórn HB Granda hefur samþykkt að leggja fyrir hluthafafund tillögu um að gefið verði út viðbótarhlutafé að upphæð 100 milljónum króna að nafnvirði til að mæta kaupum á öllu hlutafé Vignis G. Jónssonar.

Með kaupunum er HB Grandi að styrkja rekstur félagsins og taka frekari þátt í að fullvinna fiskafurðir.

Eigendur Vignis G. Jónssonar munu stýra félaginu áfram og reka það í óbreyttri mynd en möguleikar á samlegð, eins og til dæmis við sölu afurða, verða nýttir í framhaldi af kaupunum.