Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,48% í viðskiptum dagsins. Velta á hlutabréfamarkaði nam rúmum 1,5 milljarði. Heildarvelta á mörkuðum nam 7,33 milljörðum.

Gengi bréfa HB Granda lækkuðu mest í dag eða um 3,25% í tæplega 52,2 milljón króna viðskiptum. Einnig lækkaði gengi bréfa Eimskipafélags Íslands eða um 1,34% í 348 milljón króna viðskiptum. Gengi bréfa í Fjarskiptum lækkaði um 1,22% í 53,7 milljón króna viðskiptum.

Gengi bréfa í Regni h.f. hækkaði um 0,76% í tiltölulega litlum viðskiptum. Einnig hækkaði gengi bréfa í Högum um 0,47% í tæplega 117 milljón króna viðskiptum. Gengi bréfa í Icelandair hélst hins vegar í stað í tæplega 422 milljón króna viðskiptum.