Ragnheiður Eiríksdóttir hefur verið ráðin til aðstoðar Atla Gíslasyni alþingismanni og verður með aðsetur í Reykjanesbæ.

Ragnheiður Eiríksdóttir er betur þekkt sem Heiða en undir því nafni hefur hún komið fram í ýmsum hljómsveitum, þar á meðal Unun. Hún býr nú á Reykjanesi með fjölskyldu sinni en hún lærði heimspeki við Háskóla Íslands og  tók eitt ár í Masternámi í Technische Universität í Berlín.

Ragnheiður hefur unnið ýmis störf um ævina, sem blaðamaður, tónlistargagnrýnandi og fleira, en þekktust er hún að sjálfsögðu fyrir tónlist sína.

Maki Ragnheiðar er Elvar Geir Sævarsson, tónlistarmaður og saman eiga þau soninn Óliver.