Eigendur einkahlutafélagsins  Heiðarsólar  ehf. (áður Saxhóll ehf),  óskuðu í gær eftir því  að félagið yrði tekið til gjaldþrotaskipta.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu en þar kemur fram að helstu eignir Heiðarsólar eru fólgnar í skuldabréfum, hlutabréfum og fasteignum, en auk þess hafi handbært fé félagsins verið umtalsvert um áramót eða á fjórða milljarð króna.

„Starfsemi félagsins á sér langa sögu og voru eignir þess umtalsverðar fyrir tíma nýliðinnar eignabólu.  Eftir bankahrun var eigið fé félagsins enn jákvætt og vonir stóðu til þess að hægt yrði bjarga rekstri þess,“ segir í tilkynningunni.

„Í ljósi ábyrgða sem fallið hafa á félagið og afar neikvæðra rekstrarskilyrða, sem felast ekki síst í háum vöxtum og þröngri rekstrarstöðu fyrirtækja ásamt hríðfallandi virði verðbréfa,  er  því miður ekki hjá því komist að eigendur félagsins axli ábyrgð og  óski eftir gjaldþrotaskiptum á félaginu. „

Þá kemur fram að engar skuldir séu í Heiðarsól aðrar en við viðskiptabanka Heiðarsólar. Megin ábyrgðir og skuldir séu við Nýja Landsbankann og sé ósk eigenda félagsins um gjaldþrotaskiptin gerð í fullu samráði við bankann og stærstu kröfuhafa.

Það er nú í höndum skiptastjóra að ráðstafa eignum félagsins í þágu kröfuhafa.